Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni.
Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið
Nú á tímum samfélagsmiðla þarf maður sífellt að passa sig betur á því að setja ekki vafasamar myndir af sér á Vefinn – og forðast láta mynda sig við óheppilegar aðstæður.
Google er orðið helsta tæki vinnuveitenda þegar þeir vinsa út umsækjendur um störf auk þess sem allir sem teljast opinberar persónur eða eru í áhrifastöðum mega búast við að fyrir rest muni óheppilegar partímyndir sem settar hafa verið inn á Vefinn dúkka upp og fara í dreifingu meðal þeirra sem e.t.v. ættu síst að sjá þær.
Persónulega er ég guðs lifandi feginn yfir því að stafrænar myndavélar, blogg og Facebook hafi enn tilheyrt vísindaskáldsögum þegar ég var að hlaupa af mér hornin (þótt tilhugsunin um það sem hægt sé að gera með góðum skanna valdi örlitlum skjálfta). Þó er staðreyndin sú að það eru ekki bara óharðnaðir og villtir unglingar sem lenda í vandræðum með óæskilegar myndbirtingar á Netinu, heldur geta það verið jafnvel virðulegir skólastjórar sem lenda í því.
Glæpirnir teknir upp og birtir
PC World hefur nýlega tekið saman tólf af vandræðalegustu myndbirtingunum á Vefnum og er ansi gaman að renna í gegnum þær sögur. Þarna má meðal annars lesa um skólastjórann sem fór í ferðalag til Mexíkó, skellti nokkrum myndum inn á Facebook, og lét fylgja með vafasama myndatexta sem mátti túlka sem kynþáttafordóma. Úr varð skandall sem lesa má um á Wikipedia og leiddi til þess að skólastjórinn þurfti að biðjast afsökunar.
Svo var það pilturinn sem olli umferðarslysi sem varð til þess að kona slasaðist illa og hann var lögsóttur. Nokkrum vikum síðar mætti hann í fangabúningi í partý og gerði með því grín að málinu. Myndin birtist á Netinu og barst alla leið til dómarans, sem nýtti hana til refsiþyngingar. Einnig er þarna minnst á breskan pilt sem tók myndir af sér keyra of hratt, stela bensíni, neyta fíkniefna og þar fram eftir götunum – og birti á Netinu. Sem eins og gefur að skilja einfaldaði lögreglunni að stöðva hann af.
Bakveikur – en þó liðtækur í vaxtaræktinni
Jafnframt eru þarna sögur af fólki sem blekkir vinnuveitanda sinn – en svo dúkka upp myndir sem koma upp um blekkingarleikinn. Eins og t.d. pilturinn sem sagðist þurfa að fá frí úr vinnu vegna fjölskyldumála en birti svo mynd af sér á Facebook í álfabúningi í partíi sama kvöld – sem leiddi til þess að hann þurfti ekki að mæta aftur í vinnuna. Og svo slökkviliðsmaðurinn sem fékk nokkurra vikna frí vegna bakverkja, en lenti svo í því að myndir úr vaxtaræktarkeppni sem hann tók þátt í á meðan á veikindafríinu stóð fóru að dúkka upp á Vefnum og Youtube – sem eins og búast mátti við gladdi ekki vinnuveitendurna.
Reyndar vantar þarna eina ótrúlegustu myndbirtinguna í sögu Internetsins – þegar bresku hjónin John og Anne Darwin reyndu að svíkja út tryggingafé með því að setja dauða Johns á svið. Nokkrum árum síðar þóttist hann snúa aftur minnislaus og fór málið í fréttirnar. Blaðamenn voru þó ekki lengi að finna myndir af hjónunum á Vefnum við íbúðakaup í Panama nokkrum mánuðum áður og þar með leið ekki á löngu þar til blekkingarleikurinn komst upp.
Þessar og fleiri svipaðar sögur sem finna má í upptalningu PC World segja okkur svo ekki verður um villst að það sé nauðsynlegt að fara ekki einungis varlega í að senda sjálfur myndir af sér á vefinn – heldur þurfi ekki síður að passa sig á að aðrir myndi mann ekki á óheppilegum tímapunkti. Nú og svo er auðvitað þriðji möguleikinn að lifa heiðarlegu lífi og haga sér ætíð skynsamlega...
Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslumog fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims. EM> Kristinn heldur úti blogginu Stóra bólan. P>
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun