
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Ég ætla í gott bað. Gnarr orðinn borgarstjóri og Dagur forseti borgarráðs. Maður þarf að taka hrollinn úr sér. Þetta verður langt bað og kannski ágætt að nýta tækifærið áður en þeir Knoll og Tott hækka verðið á heita vatninu. Mér líður líka vel með að vita að Dagur hafi hangið utan á húsi í Æsufelli sumarlangt og málað það. Þess vegna var svo sniðugt að halda blaðamannafundinn á þaki hússins. Það fer þeim vel, þeir eru báðir úti á þekju. Það vill líka svo vel til að bróðir Jóns Gnarr er þarna húsvörður og leyfði kvikmyndatökuliðinu að fara út á þakið.
Guðni Ágústsson segir að Gnarr sé að taka upp kvikmynd um aulann sem varð borgarstjóri og lék á kjósendur sem báðu um að láta leika á sig og fá það hlutverk.
Ég spái því að þar sem þessir tveir kynlegu kvistir, Gnarr og Dagur, koma saman verði miklir timburmenn á eftir.
Jón Gnarr segir að næstu ár geti orðið erfið fjárhagslega en þau þurfi ekki að vera leiðinleg. Mikið er gaman að heyra það. Núna verður svo skemmtilegt að greiða hærri skatta og svo ekki sé talað um heita vatnið.
Dagur er mikill áhugamaður um Orkuveituna og heita vatnið. Hann studdi REI og var ásamt Össurri flokksbróður sínum á þeirri skoðun að við borgarbúar hefðum farið á mis við 50 til 60 milljarða króna við að stöðva REI-útrásina.
Dagur sagði fyrir kosningarnar um síðustu helgi að skuldir væru að sliga Orkuveituna. Ekki andmæli ég því. Heildarskuldir hennar eru 241 milljarður króna og þar af 214 milljarðar í erlendum skuldum.
Dagur sagði ennfremur fyrir kosningarnar að það þyrfti að bregðast við alvarlegri stöðu Orkuveitunnar eftir hrun, bæði gengisfalli krónunnar og gríðarlega miklum framkvæmdatengdum skuldum og að meirihlutinn ætlaði að láta það bíða nýs meirihluta að taka á málum.
Dagur hefur erft áhuga Alfreðs Þorsteinssonar á Orkuveitunni sem átti fyrirtækið þau þrjú tímabil sem R-listinn var við völd og skuldsetti það upp í rjáfur vegna framkvæmda á Hellisheiðinni.
Núna óskar Orkuveitan eftir því að tekjur fyrirtækisins verði hækkaðar í framtíðinni – fylgi verðlagi enda þarf einokunarfyrirtækið að ná endum saman. Búið er að reikna út tvö- til þrefalda hækkun á heita vatninu svo arðsemiskröfum verði náð – allt á kostnað litla mannsins sem fer í bað á kvöldin.
Annars ætla ég ekki að ræða illa um Alfreð. Mér leið alltaf vel þegar hann átti Orkuveituna prívat og persónulega. Það voru góðir dagar. Risarækjan var hrikalega góð á bragðið þótt hún kostaði sitt.
Ég var einn þeirra sem varði Alfreð þegar menn deildu á hann fyrir að hækka verðið á heita vatninu eftir hlýindi eitt sumarið. Alfreð kom okkur í skilning um það þyrfti að hækka verðið vegna þess að við hefðum notað minna heitt vatn í sumarblíðunni. Ergó; hærra verð, betra veður.
Við heittrúaðir stuðningsmenn Alfreðs tókum hann á orðinu: Fínt, hver borgar ekki hærra verð fyrir heita vatnið gegn því að fá gott veður í staðinn.
Ég vildi meira að segja borga enn hærra verð og losna við sólarlandaferðina það árið.
Alfreð stóð við sín loforð um betra veður og varanleg hlýindi eftir verðhækkunina. Fljótlega stækkaði gatið á ósonlaginu og nokkrar ráðstefnur hafa verið haldnar um hlýnun jarðar.
Síðast í desember var loftslagsráðstefna í Kaupmannahöfn þar sem sjálfur Obama mætti en hann minntist ekki einu orði á Alfreð og R-listann.
Alfreð og R-listinn áttu Orkuveituna. Þetta var gósentíð. Farið var út í tilraunaeldi á risarækjum og fjarskiptin maður, ég gleymi þeim ekki. Lina.net, Tetra Ísland og Rafmagnslínana ehf. Alfreð og R-listinn vildu kaupa Símann og búlgarska símann líka.
Það var allt óþrjótandi hjá Orkuveitunni þegar Alfreð og R-listinn áttu hana – líka skuldirnar.
Hvað með það þótt einhverjar skuldir hækkuðu í allri framkvæmdagleðinni uppi á Hellisheiði? Núna fer maður oftar í bað til að greiða þær niður og meðal-stofuhiti hefur hækkað úr 18 gráðum í 25 gráður í húsum í Reykjavík.
Einu sinni hét Orkuveitan bara því látlausa nafni Hitaveita Reykjavíkur. Það þótti ekki fínt nafn. Samt var þetta fínt og vel rekið fyrirtæki sem átti fullt af peningum sem R-listinn uppgötvaði að gæti reddað illa reknum borgarsjóði.
Markmið Hitaveitunnar gömlu var einfalt; hita hús í Reykjavík og koma fólki í gott bað kvölds og morgna. Í þá daga var barátta fyrirtækisins við kalt veður, hvort lagnirnar þyldu gaddinn og frosthörkur. En svo kom Alfreð og R-listinn og þá varð helsti óvinur Hitaveitunnar heitt veður og minni notkun.
Alfreð hefur snúið aftur í Degi B. Eggertssyni. Hann er límið í vitleysunni. Hann er úti á þekju með Gnarr. Ég ætla í gott bað og taka úr mér hrollinn.
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is
NÝLEGIR PISTLAR