
ELDRI PISTLAR
PISTLAR
Ólafur Harðarson prófessor segir að erfitt sé að spá um úrslitin í Reykjavík vegna þess að gengi Besta flokksins í könnunum sé algert einsdæmi. „Það væri óðs manns æði. Ég held að það væri jafnvitlaust fyrir mig að segja eitthvað um úrslitin í Reykjavík eins og það væri vitlaust fyrir jarðvísindamann að segja til um hvort Katla gysi árið 2011.“
Ég varð nokkuð hissa á þessum ummælum Ólafs sem af mörgum er talinn á meðal helstu sérfræðinga þjóðarinnar þegar kemur að kosningum. Mér finnst einmitt auðvelt að spá fyrir um úrslitin í ljósi kannana sem segja að Jón Gnarr og Besti flokkurinn fái 7 borgarfulltrúa. Ég ætla að trúa könnunum og spá því að hann fái 7 menn – og jafnvel hreinan meirihluta.
Framboð Besta flokksins er yfirlýst grínframboð og þess vegna getur brandarinn staðið yfir í fjögur ár. Fylgi Besta flokksins tók kipp eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis var birt.
Jón Gnarr sækir fylgi sitt til ráðvilltra kjósenda. Flestir segja að kjósendur séu að hegna fjórflokknum svonefnda. Það er samt enginn flokkur með því nafni en allir vita hvað er átt við.
Fylgjendur Jóns Gnarr segja að vinnubrögð gömlu flokkanna sé grín vegna þess að þeir hafi hegðað sér hlægilega á Alþingi og í borgarstjórn.
Ég næ því ekki að fólk ætli að kjósa grínframboð á erfiðum tímum í þjóðfélaginu þar sem mikið mæðir á að borginni sé vel stjórnað – ekki síst í fjármálum. Það breytir því ekki að ég spái Jóni Gnarr sjö mönnum.
Mér finnst ólíklegt að fjórflokkurinn myndi með sér bræðing gegn Jóni Gnarr – eingöngu til að halda honum utan kjötkatlanna. Það yrði þá hræðslubandalag líkt og R-listinn var hræðslubandalag gegn Sjálfstæðisflokknum.
Hvar er Gnarr í pólitík? spyr ég vegna þess að mér finnst líklegast að hann myndi stjórn með einhverjum af gömlu flokkunum. Hann kemur fyrir sjónir sem íhaldssamur guðsmaður. Það kæmi mér samt verulega á óvart ef hann stigi í vænginn við sjálfstæðismenn – ég held hann leiti frekar til VG eða Samfylkingar.
Þar með erum við eiginlega orðin rökþrota. Því, hvað verður þá um brandarann? Gnarr tekur sig þá orðið alvarlega og verður hluti af klíkunni sem einmitt er verið að hegna með því að kjósa hann. Svolítið snúið – ekki satt?
Samfylking og VG finna mest fyrir Jóni Gnarr í könnunum. Viðbrögð Dags B. Eggertssonar, borgarfulltrúa og varaformanns Samfylkingar, eru fýluköst út í Gnarr.
Dagur á mjög erfitt með að kyngja því að fólk hænist ekki að honum sem leiðtoga. Hann lofar aukinni atvinnu í borginni sem borgarfulltrúi en hefur ekki sömu stefnu sem varaformaður Samfylkingar. (Góð teiknimyndin í Mogganum sem lýsti þessu ágætlega.)
Það hefur engin áhrif á fylgi Samfylkingar þótt Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sé fórnað kortéri fyrir kosningar. Það er dæmigerð sýndarmennska Samfylkingar og ekkert annað. Fólk sér í gegnum þetta trix.
Ólafur F. Magnússon býður fram H-lista (lesist ekki sem háleistur) og segir hann standa fyrir heiðarleika.
Er Ólafur F. Magnússon heiðarlegri en aðrir frambjóðendur? Það er hann ekki. Hann fór með níðvísur um Hönnu Birnu í ræðustól í borgarstjórn sl. vetur og var víttur fyrir og keypti auglýsingar til að birta níðið í Fréttablaðinu og RÚV. Með níðvísunum fór Ólafur út fyrir allt velsæmi.
Sigur Jóns Gnarr hefur miklar afleiðingar. Hann frestar því miður alþingiskosningum. Ekkert er eins mikilvægt og að losna við ríkisstjórnina. En sannið þið til; hefðbundnu flokkarnir þora ekki að efna til kosninga af ótta við að brandarinn breiðist út um landið og berist út í alþingiskosningar. Þeir taka ekki sénsinn á Gnarr.
Gnarr hefur náð fylgi þrátt fyrir að fá ekkert fé frá hinu opinbera. Gleymum því ekki að flokkarnir á Alþingi fá um hálfan milljarð í styrki. Þessir flokkar eru núna á framfæri hins opinbera, þjóðarinnar, eftir að hámarkið um 300 þús. krónu styrk á kennitölu var í lög leitt.
Ég hef sagt það áður að ef flokkarnir á Alþingi væru fyrirtæki þá væri Samkeppniseftirlitið löngu búið að dæma flokkana fyrir samráð, samtryggingu og ég veit ekki hvað fyrir að koma slíkum lögum á. Í þessu máli komast gömlu flokkarnir næst því að teljast fjórflokkur.
Ríkisstyrkirnir til flokkanna hindrarar aðgengi nýrra flokka að markaðnum en Samkeppniseftirlitið tekur yfirleitt hart á slíkum málum þegar fyrirtæki eiga í hlut.
Sigur Jóns Gnarr leiðir líka af sér foringjavandamál innan Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þetta verður útreið fyrir Dag sem fiskar ekki. Þetta kemur sér líka illa fyrir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og tefur fyrir frama hennar innan Sjálfstæðisflokksins.
Ég hef áður sagt að um 90% af útgjöldum sveitarfélaga eru bundin í lögum. Það er því ekki nema 10% sem pólitíkusar geta ráðstafað í gæluverkefni, eins og íþróttahús og sundlaugar, líkt og Álftnesingar gerðu – sem og aðra brandara.
Brandarar eru misdýrir, misgóðir og mislangir. Ég skil ekki hvers vegna fólk kýs grínframboð. En ekki hlæja að Jóni Gnarr í þetta skiptið; hann tekur þetta í kjörklefanum, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.
Það er enginn spámaður í eigin föðurlandi. Verum samt ekki hrædd við að spá. Það er hægt að spá í og um allt; Kötlugos sem úrslitin í Reykjavík.
Hvers vegna hringir Ólafur Harðarson t.d. ekki í nafn sinn og fyrrum félagsfræðiprófessor Grímsson? Að minnsta kosti ef hann vill vita eitthvað um Kötlugos og fá góða spá um það.
Það eru allir að spá. Til dæmis eftir eftir úrslitin á sunnudagsmorgun: Spáðu í mig, þá mun ég spá í þig.
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is
NÝLEGIR PISTLAR