leita

ELDRI PISTLAR

07. apríl | Frægð og frami (BJ)
Ég hef ekki verið duglegur að endurnýta pistla sem skrifaðir hafa verið hér á vefinn. Stöku sinnum hef ég laumað köflum úr þeim inn í greinar en aldrei endurnotað pistil í heild. Svo skrifaði ég Ég er ekki að skilja þetta og fékk talsvert mikil viðbrögð. Þannig að ég

Það er stuð á Steingrími. Það er líka þekkt úr fræðum rafmagns að þegar rafsegulsviðið er sterkt að þá verður vart við truflanir í nærliggjandi tækjum og ólíkindatólum. Steingrímur spurði forstjóra nokkurra orkufyrirtækja á fundi Samtaka atvinnulífsins hversu mörg ástarbréf hann hefði skrifað til að fá lán fyrir þá

Forseti Íslands hefur frá degi til dags ekki brýnum skyldum að gegna. Upplýst hefur verið að á liðnu ári var hann 101 dag í burtu og á yfirstandandi ári hefur hann verið langdvölum erlendis, mest í einkaerindum. Það er athyglisvert að prívatmaðurinn Ólafur virðist vera samkvæmisljón og lætur sig ekki


PISTLAR

07/05/2010 | 17:52

Haukur ekkifréttamaður (JGH)

Þegar ég fékk mér bita á BSÍ í vikunni vatt sér að mér þekktur maður úr þjóðlífinu og benti mér á frétt í DV þar sem fyrirsögnin var þessi: Jón Ásgeir á ekki Hamborgarafabrikkuna. Þetta var svokölluð ekkifrétt, þó ekki eftir Hauk Hauksson ekkifréttamann sem var á Rás 2 um árabil en hætti þar fyrir nokkrum árum.

Ekkifréttir eru samt ennþá fluttar og það um ekki ómerkari menn en Jón Ásgeir og Má Guðmundsson seðlabankastjóra en um þann síðarnefnda var stærsta ekkifrétt vikunnar. Þar sagði að 400 þúsund launahækkun Más seðlabankastjóra væri ekki hækkun heldur lækkun; nema hvoru tveggja hafi verið.

Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, vildi ólm hækka Má í launum en ekki lækka, enda hafði einhver í forsætisráðuneytinu lofað honum prívat og persónulega óbreyttum kjörum þegar hann sótti um.

Már sagðist alls ekki vilja neina launahækkun enda væri tillagan ekki um launahækkun. „Þetta er því ekki spurning um launahækkun heldur hvernig launalækkunin verður á grunvelli þessara laga,“ sagði svo afar skýrt í tilkynningu frá Má.

Þessar reiknikúnstir meistarans við Arnarhólinn setja auðvitað umræðuna um stýrivextina og lækkun þeirra í nýtt samhengi. Þegar við hin tölum um vaxtalækkun umreiknast það í bankanum sem vaxtahækkun og öfugt. Sniðug stærðfræði.

Það hefði mátt segja manni þetta fyrr.

Lára V. sagði við Morgunblaðið að Má hefði verið lofað, þegar hann var ráðinn, að upphafleg kjör seðlabankastjóra myndu gilda áfram um hann. Hún vildi ekki tjá sig um það hver hefði gefið Má það vilyrði.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að loforðið sé ekki frá sér komið, hún hafi ekki talað við Má og hvað þá lofað honum einhverju. Enda er hún vinur litla mannsins og heldur sig við þá hæð eins og Albert Guðmundsson forðum.

Ég er nokkuð viss um að nú verður einn Yes, minister tekinn á lausn þessa máls. Já, ráðherrann í forsætisráðuneytinu hvíslar því eflaust að Láru að það sé hægt að fara framhjá þessum vandræðum með því að greiða Má laun fyrir hverja nefndina af annarri.

Hiða sjóaða lið í forsætisráðuneytinu veit hvernig á að fara í kringum þetta svo það líti ekki mjög illa út gagnvart litla manninum. Ekki veit ég hvort greitt sé núna sérstaklega fyrir formennskuna í peningamálanefndinni en það eru víða nefndir.

Mest er ég raunar hissa á að Már skyldi ekki vera lengur í Sviss þar sem hann lifði í vellystingum og á alvöru bankastjóralaunum í bankalandinu sem framkvæmdastjóri hjá BIS bankanum í Sviss. Auðvitað er 400 þúsund kallinn launalækkun miðað við kjör hans þar.

Ekki hefði ég haft áhuga að koma í ljónagildruna á Íslandi með starfið hjá BIS í hendi. En kannski var þetta eina tækifærið við Arnarhólinn.

Víkur þá sögunni aftur að umferðamiðstöðinni, BSÍ, og ekkifréttinni um Jón Ásgeir. Það hefur víst ekki farið framhjá neinum að það eru útvarpsmennirnir Simmi og Jói, sem eiga Hamborgarafabrikkuna og þeim tókst svo vel til að fá Stöð 2 til að gera raunveruleikaþátt um opnun staðarins. Skúli á Subway er víst sagður eiga eitthvað í staðnum líka.

Núna þarf hins vegar að spyrja þá á DV hvort þeir hafi  ekki séð raunveruleikaþáttinn og hvers vegna þeir hafi séð svo mikla ástæðu til að segja sérstaklega frá því að Jón Ásgeir ætti ekki fabrikkuna. Jón Ásgeir var lengi vel eigandi og helsti vinur DV. Það skal tekið fram að hann á ekki DV lengur.

Kannski þetta sé upphafið að því í íslenskri blaðamennsku að segja sérstaklega frá því hverjir eigi ekki fyrirtæki. Ef svo er þá er eins gott að ráða Hauk Hauksson ekkifréttmann aftur á Rás 2, hann getur þá hætt í uppistandinu og byrjað að blaða í hlutafélagaskránni og jafnvel símaskránni – sem væntanlega fer í prentun á næstunni.

Þegar bankabólan stóð sem hæst var veldi Jóns Ásgeirs það bólgið að sagt var að hann ætti öll fyrirtæki frá vöggu til grafar. Það merkti víst að hægt væri að komast í gegnum lífið með því að skipta eingöngu við Jón Ásgeir.

Þó vottaði á þeim tíma fyrir ekkifréttamennsku því veldið var svo mikið að það var fyllsta ástæða til að taka það sérstaklega fram að Jón Ásgeir ætti hvorki fæðingardeildina né kirkjugarða Reykjavíkur.

Annars mætti Haukur ekkifréttamaður byrja á því að fara ofan í slúðrið um að Jón Ásgeir eigi ekki 365-miðla og upplýsa okkur um hverjir eigi þetta fjölmiðlaveldi ef Jón Ásgeir á það ekki.

Hver kom t.d. með milljarðinn inn í 365 um daginn? Sagt hefur verið frá því að Ingibjörg Pálmadóttir eigi hluta af milljarðinum en ekki upplýst um hlut makans – en sennilega eru þau ekki með sama fjárhag samkvæmt þessu.

Ég er sammála Jóni Ásgeiri að það var ekki kúl þegar stöðin hans flutti fréttir af því um daginn að hann hefði fengið tvö tíu ára kúlu-lán hjá Landsbankanum upp á 440 milljónir.

Það hefði verið miklu sniðugra að segja að Jón Ásgeir hefði ekki fengið tvær kúlur í bankanum. Þannig hefði Haukurinn tekið á því á Rás 2.

Jón Ágeir þarf ekki að greiða kúlurnar fyrr en 2020. Síðast þegar maður sá 2020 eitthvað í kúlu-samningum var þegar Indriði og Svavar sömdu við Breta um Icesave. Það var ekkifrétt á bak við það. Því Steingrímur J. sá sérstaka ástæðu til að svara Þór Saari í byrjun júní í fyrra að ekki væri verið að semja við Breta og Hollendinga.

Svabbi samdi tveimur dögum síðar enda nennti hann þessu ekki lengur. Hann var lengi vel ekkifréttamaður á Þjóðviljanum hér um árið. Þá var mikið af ekkifréttum af lífinu austan járntjalds.

Svo er bara að drífa sig niður í Landsbanka og biðja um tvær kúlur til 2020. Bíddu, þú ert ekki Jón...jú, víst er ég Jón. Samt er ekkifrétt í því. Ég á ekki Hamborgarafabrikkuna.
 
Jón G. Hauksson
jgh@heimur.is





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is